NEWS OF ICELAND (Reykjavík) 04 October 13 Corn Snake startled grocery store customers in Reykjavík
Iceland is known to be free of all 'disgusting' insects and reptiles, as well as dangerous animals such as lions and tigers. Today however, to everyone's surprise, a snake was seen crawling around in a grocery store in the city.
[COLOR="#0000CD"]The snake tried to catch a young girl [COLOR="#006400"]{??!!}
A woman was shopping in the store with her two daughters when one of them screamed that a snake was following her. The woman turned around and saw that the girl was telling the truth, hardly believing her own eyes but very startled.
The snake was about 1 meter (3 feet) long, brown and yellow - a Corn Snake (Pantherophis guttatus).
It was caught and killed by an exterminator. The store is now trying to find out where the snake came from, amongst other things, by going through security camera footage.
Helgi Guðbrandsson was in the store at some point and caught the snake on tape:
http://www.newsoficeland.com/home/culture/daily-life/item/2327-corn-snake-startled-grocery-store-customers-in-reykjavík
MORGUNBLAÐIÐ (Reykjavík, Iceland) 04 October 13 Myndband af snáknum: „Var bara kríli“
„Þetta er skemmtilegasta búðarferð sem ég hef farið í síðan ég veit ekki hvenær,“ segir Helgi Guðbrandsson sem var staddur í Krónunni í Kópavogi í dag þegar snákur liðaðist þar um gólfið. Helgi stóðst ekki mátið að draga upp símann og taka myndskeið. Hann segir starfsfólk Krónunna hafa gengið rösklega til verks.
Helgi segist hafa verið að tína vörur í körfuna í mestu rólegheitum þegar hann heyrði óp og köll. „Ég sé konu benda eitthvað og þá var bara slangan að skríða þarna meðfram hillunni. Í því kemur starfsmaður aðvífandi og biður fólk um að fara ekki of nærri honum því við vissum náttúrulega ekkert hvað þetta var,“ segir Helgi.
Starfsmaður á kassa fjarlægði snákinn
Misjafnar sögur fóru af því í dag hversu stór snákurinn var en Helgi segist ekki hafa upplifað að mikil ógn stafaði af honum. „Þetta var bara pínulítið kríli. En það verður auðvitað svolítið uppnám hjá fólki þegar það sér slöngu.“
Eftir stutta stund kom einn afgreiðslumanna í Krónunni íklæddur hönskum, tók snákinn upp og fór með hann afsíðis. „Starfsfólkið stóð sig frábærlega, mér finnst þau eiga hrós skilið fyrir að ganga rösklega til verks og afgreiða málið strax.“
Leitað var til meindýraeyðis sem aflífaði snákinn með hraði. Í yfirlýsingu frá Krónunni nú síðdegis segir að atvikið sé harmað. Búið sé að skipta öllum ávöxtum og grænmeti í versluninni út og sett af stað ítarleg athugun á því hvernig þetta gat gerst.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/10/04/myndband_af_snaknum_var_bara_krili/

